Það var glöggur ökumaður sem rak augun í þyrluna við Miklubraut þegar hann var á leið í vinnuna í morgun þannig að hún er komin til eiganda síns. Batteríið vantar reyndar ennþá -- það virðist hafa dottið úr við brotlendinguna en fannst ekki þrátt fyrir nokkra leit.
Rétt er að nota tækifærið og þakka öllum þeim sem höfðu augun opin fyrir þyrlunni. Minni þá sem eiga svona þyrlu að mikilvægt er að merkja ekki bara þyrluna sjálfa með nafni og símanúmeri heldur einnig batteríin greinilega. :)
Leitin að þyrlunni
Wednesday, January 7, 2015
Monday, January 5, 2015
Kominn á byrjunarreit aftur
Ábendingin sem barst um þyrluna var mjög góð en reyndist, skv. heimilisfólki, vera önnur þyrla sem var á flugi á sama tíma. Leitin er því aftur komin á byrjunarreit :( og ég myndi þiggja allar ábendingar sem þið kynnuð að hafa: thyrlumynd@gmail.com, eða í síma 696 2717 (Finnur).
Friday, January 2, 2015
Hringurinn þrengist
Dreifibréfið virðist strax farið að gera gagn, því ég fékk símhringingu frá manni sem sá þyrluna á lofti rétt hjá mótum Sogavegar og Tunguvegar, sem ætti að ná að þrengja leitarhringinn. En endilega látið í ykkur heyra ef þið hafið einhverjar frekari upplýsingar.
Staða leitar
Takk fyrir að líta hér inn! Þyrlan mín hefur verið týnd síðan um áramót og ítrekuð leit hefur enn ekki borið árangur. Næsta skref er því að dreifa orðsendingu til íbúa Gerðahverfis í þeirri von að einhver geti veitt upplýsingar sem gætu hjálpað til við leitina. Endilega látið í ykkur heyra ef þið hafið einhverjar vísbendingar.
Veist þú um þyrluna?
Á miðnætti á gamlárskvöldi var þyrlan hér að ofan á sveimi yfir Gerðahverfi að njóta glæsilegs útsýnis yfir flugeldana þegar hún missti skyndilega samband við fjarstýringu eiganda síns. Í henni er búnaður sem er hannaður til að höndla þær aðstæður og stýra aftur á upphafsstað en hann virðist ekki hafa virkað sem skyldi.
Líklegast er því að þyrlan hafi beðið á lofti eftir að ná aftur sambandi við fjarstýringuna (sem gerðist ekki) en lent svo mjúklega þegar rafhlaðan kláraðist. Væntanlega er hún því í garði, á svölum, þaki eða jafnvel uppi í tré einhvers staðar í nágrenni húss þíns.
Þrátt fyrir mikla og ítrekaða leit þá hefur þyrlan enn ekki fundist. Leitarhringurinn er þó ansi stór, og aðstæður til leitar erfiðar þar sem nokkuð hefur snjóað síðan hún týndist.
Ef þú eða fjölskyldumeðlimir þínir hafa einhverjar upplýsingar um þyrluna, t.d. munið hvar þið sáuð hana á lofti, þá megið þið gjarnan hafa samband: thyrlumynd@gmail.com, eða í síma 696 2717 (Finnur).
Subscribe to:
Comments (Atom)